Keilisbraut 771 – Laust til útleigu
Fasteignin við Keilisbraut 771 er tæplega 4.000 fermetrar að stærð og hýsir fjölbreytta atvinnustarfsemi.
Til leigu er atvinnuhúsnæði við Keilisbraut 771, sem hentar undir fjölbreytta starfsemi. Heildarstærð fasteignarinnar er 3.990 fermetrar, þar af eru rúmlega 1.500 fermetrar lausir. Í boði eru rými frá 200 fermetrum upp í 1.500 fermetra, með möguleika á að aðlaga stærð að þörfum leigutaka.
Fasteignin hefur nýlega verið endurnýjuð að utan og að hluta til að innan og býður upp á margvíslega nýtingarmöguleika, svo sem undir verslun, veitingarekstur, skrifstofur, þjónustu, lager eða geymslur. Einnig er möguleiki á að fá rými afhent lengra komið eða sérsniðið eftir þörfum leigutaka.
Næg bílastæði eru við húsið og stutt er í alla helstu þjónustu, þar á meðal verslanir, veitingastaði, líkamsrækt og almenningssamgöngur, sem tryggir gott aðgengi fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.
Keilisbraut 771 er kjörin lausn fyrir fyrirtæki sem leita að faglegu, sveigjanlegu og vel staðsettu atvinnurými í ört vaxandi bæjarhluta. Á svæðinu búa um 5.000 íbúar, auk fjölda þeirra sem starfa, sækja þjónustu eða gista á svæðinu daglega.
Í húsnæðinu eru nú þegar starfandi fjölbreytt fyrirtæki, þar á meðal veitingastaður, bílaleiga, rekstrarfélög, snyrtistofur og byggingarfélag. Húsnæðið stendur jafnframt við hlið eins stærsta hótels á Suðurnesjum, auk bílaleigu, sem tryggir mikla umferð ferðamanna og sýnileika.
Leiguverð: frá 1.800 kr. á fermetra, án vsk.
Leigutakar:
Hefur þú áhuga á þessari eign?
Sendu okkur línu og umsjónarmaður eignar hefur samband um hæl
Konvin Setrið
Konvin Setrið vinnustaðaklasi býður upp á nútímalegt og faglegt skrifstofu- og vinnuumhverfi fyrir fyrirtæki af öllum stærðum. Sem hluti af KONVIN vörumerkinu leggjum við áherslu á gæði, sveigjanleika, persónulega þjónustu og að skapa aðstöðu sem styður við vöxt, samvinnu og vellíðan í daglegum rekstri.
Fréttir
2026
Háskóli Íslands flytur í Konvin Setrið: Öflug starfsemi Háskólabrúar Keilis í nýju húsnæði
LESA GREINMyGroup
fjárfestingafélag
Leggur áherslu á stuðning og þróun verkefna í eigu félagsins með langtíma verðmætasköpun að markmiði
Sími: +354 458 5895
Email: mygroup@mygroup.is
Heimilisfang: Keilisbraut 771

