Konvin Setrið
Konvin Setrið er vinnustaðaklasi í eigu og rekstri MyGroup, staðsett við Keilisbraut 773 á Ásbrú. Húsnæðið er hannað með þarfir nútímafyrirtækja í huga og býður upp á sveigjanlega og þægilega aðstöðu fyrir fjölbreytta starfsemi.
Á Konvin Setrinu eru 11 skrifstofur til sérnota, ásamt rúmgóðum og vel hönnuðum sameiginlegum rýmum. Fasteignin er tæplega 1.100 fermetrar að stærð og var endurnýjuð að öllu leyti árið 2024, með áherslu á nútímalega hönnun, góða aðstöðu og vellíðan.
Leigutakar njóta aðgangs að sameiginlegum rýmum sem styðja við samvinnu og faglegt starfsumhverfi, þar á meðal eldhúsaðstöðu, fundarherbergjum og notalegum setustofum. Með leigu fylgir einnig töluverð þjónusta, svo sem internet, hiti og rafmagn, kaffi, þrif og rekstur sameignar, öryggiskerfi og snjómokstur.
Næg bílastæði eru við húsnæðið, sem tryggja gott aðgengi fyrir bæði leigutaka og gesti. Þá er stutt í alla helstu þjónustu, þar á meðal verslanir, veitingastaði og líkamsrækt, sem gerir Konvin Setrið að þægilegum stað til að sækja vinnu.
Konvin Setrið er kjörinn kostur fyrir fyrirtæki sem leita að faglegu, öruggu og vel staðsettu skrifstofuumhverfi, þar sem áhersla er lögð á þægindi, þjónustu og gott aðgengi.
Frekari upplýsingar um skrifstofur Konvin Setursins:
Netfang: setrid@konvin.is
Sími: 426-5000
Lausar skrifstofur eru:
Núverandi leigutakar:
OMR verkfræðistofa: www.omr.is/
Efla Verkfræðistofa: www.efla.is/
Grimma bókhaldsþjónusta: grimma.is/
Skólar ehf.: skolar.is/
Samband Sveitarfélaga á Suðurnesjum: www.sss.is/
MyGroup ehf.: https://mygroup.is/
Háskóli Íslands: https://hi.is/
Konvin bílaleiga
Konvin bílaleiga býður upp á fjölbreytt úrval bíla í útleigu í lengri eða skemmri tíma. Sem hluti af KONVIN vörumerkinu leggjum við áherslu á persónulega þjónustu, þægindi, öryggi og að gera bíla leiguna að ánægjulegri upplifun.
Fréttir
2026
Háskóli Íslands flytur í Konvin Setrið: Öflug starfsemi Háskólabrúar Keilis í nýju húsnæði
LESA GREINMyGroup
fjárfestingafélag
Leggur áherslu á stuðning og þróun verkefna í eigu félagsins með langtíma verðmætasköpun að markmiði.
Sími: +354 458 5895
Netfang: mygroup@mygroup.is
Heimilisfang: Keilisbraut 771

