Konvin Car Rental: Fyrstu bílar fyrir 2026 tímabilið komnir í flotann
12.5.2026
Fyrstu nýju bílarnir fyrir 2026 tímabilið eru nú komnir í flotann hjá Konvin Car Rental. Um er að ræða 12 glænýja Hyundai Tucson 2026 módel.
Tucson er ný tegund hjá okkur en þrátt fyrir það hafa bókanir á bílinn farið fram úr væntingum fyrir tímabilið. Bíllinn sameinar gott pláss, þægindi og búnað sem hentar vel íslenskum aðstæðum og við hlökkum til að sjá hann á ferð um landið í sumar.
Samhliða þessum bílum erum við að bæta við okkur um 60 nýjum bílum fyrir tímabilið sem munu koma inn í flotann á næstu vikum. Með áframhaldandi endurnýjun og uppbyggingu flotans leggjum við áherslu á að bjóða ferðamönnum nýja, örugga og vel útbúna bíla fyrir ferðalagið um Ísland.
Á meðfylgjandi mynd má sjá fyrsta bílinn sem við fengum í hlaðið með skráningarnúmerið KFL82, sem við teljum góðan fyrirboða enda vísun í heimabæ Konvin, Keflavík.

